Landsliðsmaðurinn vill frekar fara til Liverpool

Marc Guéhi.
Marc Guéhi. AFP/Ian Kington

Enski knattspyrnumaðurinn Marc Guéhi vill ganga til liðs við Liverpool en hann er samningsbundinn Crystal Palace.

Það er Football Insider sem greinir frá þessu en Guéhi, sem er 24 ára gamall, sló í gegn með enska landsliðinu á EM í Þýskalandi síðasta sumar.

Hann byrjaði alla sjö leiki liðsins á mótinu en England tapaði í úrslitum fyrir Spáni á ólympíuleikvanginum í Berlín, 2:1.

Guéhi, sem er 24 ára gamall er uppalinn hjá Chelsea en gekk til liðs við Crystal Palace árið 2021 þar sem hann hefur verið lykilmaður undanfarin ár.

Football Insider greinir frá því að Newcastle sé einnig mjög áhugasamt um leikmanninn en miðvörðurinn sjálfur vill frekar fara til Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert