Markvörðurinn brotlegur og City missteig sig (myndskeið)

Anthony Gordon var hetja Newcastle er liðið gerði jafntefli við Englandsmeistara Manchester City á heimavelli í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu, 1:1.

Varnarmaðurinn Josko Gvardiol kom City yfir í fyrri hálfleik en Gordon jafnaði er hann náði í víti sjálfur og skoraði úr því af öryggi.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert