Öruggur Salah tryggði Liverpool sigur (myndskeið)

Mo Salah skoraði sigurmark Liverpool er liðið sigraði Wolves á útivelli, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Markið kom af vítapunktinum eftir að brotið var á Diogo Jota innan teigs. Ibrahima Konaté kom Liverpool yfir, áður en Rayan Ait Nouri jafnaði fyrir Wolves.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert