Fyrstu 90 mínútur Dagnýjar í rúmlega ár

Dagný Brynjarsdóttir spilaði allan leikinn í dag.
Dagný Brynjarsdóttir spilaði allan leikinn í dag. Ljósmynd/West Ham

Dagný Brynjarsdóttir spilaði allan leikinn þegar West Ham gerði, 1:1, jafntefli við Liverpool í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag.

Dagný spilaði síðast heilan leik í deildinni þegar West Ham gerði, 2:2, jafntefli við Tottenham 27. maí 2023. Hún var lengi frá þar sem hún eignaðist sitt annað barn í febrúar.

Liverpool komst yfir með marki frá Oliviu Smith á sjöundu mínútu en West Ham jafnaði metin á fimmtu mínútu uppbótartímans með marki frá Riko Ueki.

West Ham er í níunda sæti deildarinnar með eitt stig eftir tvo leiki en Liverpool er í sjöunda með tvö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert