Sá markahæsti æfir á Englandi

Oliver Heiðarsson átti afar gott tímabil með ÍBV.
Oliver Heiðarsson átti afar gott tímabil með ÍBV. mbl.is/Eyþór Árnason

Knattspyrnumaðurinn Oliver Heiðarsson, markahæsti leikmaður 1. deildarinnar á nýliðinni leiktíð, er þessa dagana á Englandi þar sem hann æfir með varaliði enska B-deildarfélagsins Watford.

Hann mun síðan halda til Liverpool um næstu helgi og æfa með varaliði Everton. Oliver sagði frá tíðindunum á fótbolta.net.

Mörk Olivers hjálpuðu ÍBV að vinna 1. deildina á nýliðinni leiktíð og tryggja sér sæti í Bestu deildinni. 

Oliver er sonur Heiðars Helgusonar, sem lék lengi með Watford. Þá lék Heiðar með Sean Dyche stjóra Everton.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert