Slæm byrjun Man Utd í tölum

Bruno Fernandes gengur af velli eftir að hafa fengið rautt …
Bruno Fernandes gengur af velli eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Tottenham. AFP/Paul Ellis

Stigasöfnun Manchester United í ensku úrvalsdeildinni hefur aldrei verið verri eftir sex leiki síðan úrvaldeildin var sett á laggirnar árið 1992. BBC tók saman staðreyndir málsins.

Tímabil Manchester United hefur farið illa af stað og 3:0 tap liðsins á heimavelli gegn Tottenham í gær hefur gert það að verkum að veðbankar í Englandi telja Erik ten Hag vera líklegastan til að vera fyrstur knattspyrnustjóra deildarinnar til að vera rekinn úr starfi.

Liðið hefur aldrei fengið færri stig í fyrstu sex leikjum tímabils.

Ole Gunnar Solskjaer var rekinn í nóvember 2021.
Ole Gunnar Solskjaer var rekinn í nóvember 2021. AFP

Aðeins einu sinni (tímabilið 2007-2008) hefur liðið skorað færri mörk í fyrstu sex leikjunum.

United hefur tapað tveimur leikjum í röð á heimavelli án þess að skora í fyrsta skipti síðan 2021 en þáverandi knattspyrnustjóri, Ole Gunnar Solskjær, var rekinn í kjölfar síðari leiksins.

United hefur tapað fleiri leikjum með þriggja marka mun síðan Alex Ferguson lét af störfum (tuttugu og þrisvar sinnum í 424 leikjum) heldur en alla stjórnartíð Skotans (tuttugu og tvisvar í 1,035 leikjum).

Liðið hefur einungis unnið þrjá af níu leikjum liðsins í öllum keppnum á tímabilinu og næstu tveir leikir liðsins eru á erfiðum útivöllum. Gegn Porto í Evrópudeildinni og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.

Sir Alex Ferguson.
Sir Alex Ferguson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert