Van Dijk sammála Slot

Ibrahima Konate og Virgil van Dijk fagna marki þess fyrrnefnda …
Ibrahima Konate og Virgil van Dijk fagna marki þess fyrrnefnda í Wolverhampton á laugardaginn. AFP/Paul Ellis

Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, segir ekki hægt að tala um titilbaráttu fyrr en í kringum áramót. Liverpool hrifsaði toppsæti deildarinnar um helgina með sigri á Wolves.

„Ég pæli ekki í töflunni núna. Desember er mikilvægur mánuður. Liðin sem standa sig vel þá eiga góða möguleika á að ná árangri,“ sagði Hollendingurinn sterki en orð hans ríma ágætlega við ummæli knattspyrnustjóra félagsins, Arne Slot.

Slot var spurður um titilvonir Liverpool á laugardaginn en hollenski stjórinn gaf ekki mikið upp.

„Menn eru raunsæir og skilja að staðan í deildinni eftir sex leiki gefur ekki endilega rétta mynd af töflunni. Það er eðlilegt að skoða stöðuna eftir nítján leiki og þá finnur þú út úr því hvort þú eigir möguleika“, sagði Slot í kjölfar 2:1-sigurs Liverpool á Úlfunum á Molineux-vellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert