Franska stórliðið lítil mótspyrna fyrir Arsenal

Arsenal-menn fagna marki Bukayo Saka.
Arsenal-menn fagna marki Bukayo Saka. AFP/Adrian Dennis

Arsenal hafði betur gegn París SG, 2:0, þegar að liðin mættust í stórleik 2. umferðar deildarkeppni Meistaradeildar karla í knattspyrnu á Emirates-leikvanginum í Lundúnum í kvöld.  

Arsenal gerði markalaust jafntefli við Atalanta frá Ítalíu í fyrstu umferð á útivelli en París SG sigraði Girona frá Spáni á heimavelli, 1:0. 

Arsenal er þar með fjögur stig í deildinni en París SG er með þrjú. Bæði lið munu leika átta leiki.

Kai Havertz kom Arsenal yfir á 20. mínútu leiksins með frábæru skallamarki eftir laglega fyrirgjöf frá Leandro Trossard, 1:0. Þá stökk Þjóðverjinn á Ginaluigi Donnarumma markvörð Parísarliðsins og stangaði boltann í netið. 

Kai Havertz stangar boltann í netið.
Kai Havertz stangar boltann í netið. AFP/Adrian Dennis

Bukayo Saka kom Arsenal í 2:0 á 35. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Þá ætlaði Saka að gefa boltann fyrir en hann fór í gegnum allan pakkann og loks í netið fram hjá aumum Donnarumma. 

Parísarliðið sótti aðeins í sig veðrið í seinni hálfleik en náði ekki að ógna liði Arsenal nægilega mikið. Þá fékk Gabriel Martinelli einnig tvö góð færi til að bæta við mörkum hjá Arsenal. 

Arsenal fær Southampton í heimsókn næstu helgi. Næstu mótherjar Arsenal í Meistaradeildinni eru Shakthar Donetsk frá Úkraínu en þá er einnig leikið í Lundúnum. 

París SG heimsækir Nice í næstu helgi en næstu mótherjar liðsins í Meistaradeildinni eru PSV frá Hollandi en þá verður leikið í Parísarborg. 

Mikel Arteta fagnar.
Mikel Arteta fagnar. AFP/Glyn Kirk
Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Arsenal 2:0 París SG opna loka
90. mín. Fjórum mínútum bætt við.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert