Fóru á kostum í fyrri hálfleik (myndskeið)

Bournemouth valtaði yfir nágranna sína í Southampton í fyrri hálfleik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í gærkvöldi og skoraði þrjú mörk í leik sem endaði 3:1.

Evanilson, Dango Ouattara og Antoine Semenyo skoruðu mörk Bournemouth í fyrri hálfleik áður en Taylor Harwood-Bellis minnkaði muninn fyrir Southampton snemma í síðari hálfleik.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert