Hrósuðu varnarmanni Liverpool

Margrét Lára Viðarsdóttir og Eiður Smári Guðjohnsen voru gestir Harðar Magnússonar í Vellinum á Símanum Sport í gærkvöldi. 

Þau ræddu 6. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu en meðal umræðuefna var frammistaða Ibrahima Konaté varnarmanns Liverpool.

Konaté skoraði fyrra mark Liverpool í 2:1-sigri á Wolves. Hann var síðan drjúgur í vörninni undir lok leiks eftir að Liverpool komst aftur yfir. 

Umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert