Arsenal hafði betur gegn Southampton, 3:1, þegar liðin mættust í London í dag í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
Cameron Archer kom Southampton yfir á 55. mínútu en Kai Havertz jafnaði metin á 58. mínútu og Gabriel Martinelli skoraði sigurmarkið á 68. mínútu. Enski landsliðsmaðurinn Bukayo Saka lagði bæðimörkin upp.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.