Fyrrverandi leikmaður Liverpool látinn

Peter Cormack er látinn.
Peter Cormack er látinn. Ljósmynd/Liverpool

Skoski knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Peter Cormack er látinn, 78 ára að aldri.

Cormack lék með Liverpool á árunum 1972 til 1976 og varð Englandsmeistari í tvígang. Hann vann einnig það sem núna er Evrópudeildin og enska bikarinn sömuleiðis.

Miðjumaðurinn lék 178 leiki fyrir Liverpool og skoraði í þeim 26 mörk. Hann lék einnig með Nottingham Forest, Bristol City og Hibernian.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert