Tvöfaldur sigur hjá Chelsea

Cole Palmer var bestur í september.
Cole Palmer var bestur í september. AFP/Glyn Kirk

Cole Palmer var í dag útnefndur besti leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Palmer, sem er sóknarmaður Chelsea, lék fjóra leiki í mánuðinum, skoraði fimm mörk og lagði upp eitt. Hann skoraði fjögur mörk í einum og sama leiknum gegn Brighton.

Knattspyrnustjórinn hans Enzo Maresca var svo útnefndur stjóri septembermánaðar. Chelsea vann þrjá af fjórum leikjum sínum í september og lék afar vel.

Chelsea er í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert