Snýr aftur til æfinga hjá Chelsea

Reece James í leik með Chelsea.
Reece James í leik með Chelsea. AFP/Glyn Kirk

Reece James, fyrirliði karlaliðs Chelsea í knattspyrnu, hefur hafið æfingar að nýju með liðinu eftir að hafa ekkert leikið með því á yfirstandandi tímabili.

James hefur verið að glíma við þrálát meiðsli aftan í læri. Slík meiðsli héldu honum einnig frá keppni stærstan hluta síðasta tímabils þegar James lék aðeins 11 leiki í öllum keppnum.

Hann gæti verið í leikmannahópi Chelsea í fyrsta sinn á tímabilinu þegar liðið heimsækir Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert