Tuchel neitaði að tjá sig

Thomas Tuchel á blaðamannafundi enska knattspyrnusambandsins.
Thomas Tuchel á blaðamannafundi enska knattspyrnusambandsins. AFP/Adrian Dennis

Þjóðverjinn Thomas Tuchel er nýr þjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu en hann tekur við í janúar. 

Hann hélt sinn fyrsta blaðamannafund í dag en knattspyrnusambandið þarlendis tilkynnti Þjóðverjann fyrr í dag. 

Tuchel, sem hefur meðal annars stýrt Dortmund, Bayern München og Chelsea, var orðaður við Manchester United fyrr í haust. 

Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um þann áhuga. 

Erik ten Hag, knattspyrnustjóri United-liðsins, er undir mikilli pressu eftir afleita byrjun á tímabilinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert