Tuchel tekur við á nýju ári

Thomas Tuchel.
Thomas Tuchel. AFP/Ian Kington

Thomas Tuchel hefur skrifað undir 18 mánaða samning við enska knattspyrnusambandið um að þjálfa karlalandsliðið. Samningurinn tekur gildi þann 1. janúar 2025.

Gildir samningurinn þannig fram yfir HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó sumarið 2026.

„Ég er mjög stoltur yfir þeim heiðri sem fylgir því að fá að stjórna landsliði Englands. Ég hef lengi fundið fyrir persónulegri tengingu við íþróttina í þessu landi, sem hefur þegar fært mér ótrúlegar stundir.

Að fá tækifæri til þess að stýra Englandi eru mikil forréttindi og tækifærið til þess að vinna með þessum einstaka og hæfileikaríka hópi leikmanna er virkilega spennandi,“ sagði Tuchel í tilkynningu frá enska sambandinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert