Guardiola ekki búinn að ákveða neitt

Pep Guardiola er knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City.
Pep Guardiola er knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City. AFP/STR

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City, segist ekki hafa ákveðið framtíð sína. 

Samningur Guardiola hjá Manchester City rennur út næsta sumar en hann hefur verið afar sigursæll með liðið og unnið sex Englandsmeistaratitla. 

Mikil óvissa er hins vegar um framtíð hans hjá félaginu en hann tók við sumarið 2016. 

„Ég er ekki búinn að ákveða neitt. Þegar ég tek ákvörðun mun ég láta félagið vita sem og ykkur fjölmiðla,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert