Slot: Stærsta prófið

Arne Slot er knattspyrnustjóri Liverpool.
Arne Slot er knattspyrnustjóri Liverpool. AFP/Paul Ellis

Arne Slot, knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool, segir að Chelsea sé erfiðasti mótherji liðsins á tímabilinu hingað til. 

Liverpool fær Chelsea í heimsókn í 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn en Liverpool-liðið er á toppnum með einu stigi meira en Manchester City og Arsenal. 

Slot sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þar sem hann viðurkenndi að Chelsea yrði stærsta próf Liverpool hingað til. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert