Mikel Arteta, knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal, var ekki á lista enska knattspyrnusambandsins.
Þetta staðfesti hann á blaðamannafundi í dag en Thomas Tuchel var í vikunni ráðinn sem þjálfari karlalandsliðsins.
Arteta var spurður hvort að sambandið hefði haft samband við hann. Við því svaraði Arteta neitandi en Mark Bullingham, framkvæmdastjóri sambandsins, sagði að það hefði verið rætt við tíu þjálfara.