Fjarverandi eftir andlát barnabarns síns

Steve Bruce er þjálfari Blackpool.
Steve Bruce er þjálfari Blackpool. AFP

Knattspyrnuþjálfarinn Steve Bruce verður ekki á hliðarlínunni þegar að lið hans Blackpool fær Barnsley í heimsókn í ensku C-deild karla í knattspyrnu í dag. 

Blackpool sendi frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að Bruce yrði fjarverandi vegna andláts fjögurra mánaða gamals barnabarns síns. 

Steve Bruce, sem er 63 ára gamall, er vel þekktur meðal knattspyrnuáhugamanna en hann stýrði meðal annars West Brom, Newcastle, Aston Villa og Hull City í ensku úrvalsdeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert