Nú fær hann Declan Rice

Thomas Tuchel og Declan Rice.
Thomas Tuchel og Declan Rice. AFP/Samsett mynd

Thomas Tuchel, nýr þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, fær loks að þjálfa Declan Rice miðjumann Arsenal. 

Tuchel var stjóri þýska stórliðsins Bayern München á síðasta tímabili og vildi ólmur fá Declan Rice til félagsins í fyrrasumar. 

Rice endaði á að velja Arsenal en íþróttastjóri Bæjara Max Eberl var spurður út í ráðninguna. 

„Þetta er góð ráðning hjá enska liðinu. Hann fékk ekki Declan Rice hérna, en hann mun fá Declan Rice þar,“ sagði Eberl og hló. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert