Son mættur aftur

Son Heung-min er fyrirliði Tottenham.
Son Heung-min er fyrirliði Tottenham. AFP/Glyn Kirk

Son Heung-min fyrirliði Tottenham er mættur aftur eftir meiðsli en hann er í byrjunarliði liðsins sem mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 11.30. 

Liðin mætast á heimavelli Tottenham en þetta er fyrsti leikur Son í rúman mánuð í deildinni. 

Tottenham hefur ekki byrjað nægilega vel í deildinni en liðið situr í níunda sæti með tíu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert