Hádramatískur sigur City í Wolverhampton

City-menn unnu afar dramatískan sigur í Wolverhampton.
City-menn unnu afar dramatískan sigur í Wolverhampton. AFP/Adrian Dennis

Manchester City vann hádramatískan sigur á Wolves, 2:1, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Wolverhampton í dag. 

City er komið á toppinn með 20 stig, tveimur stigum meira en Liverpool sem mætir Chelsea innan skamms. Wolves er í neðsta sæti með eitt stig. 

John Stones skoraði sigurmarkið undir blálok leiks með skalla eftir hornspyrnu Phil Foden. 

Jörgen Strand Larsen kom Wolves yfir á sjöundu mínútu leiksins en Josko Gvardiol jafnaði metin á 33. mínútu. 

Mark Stones kom eftir mikla pressu City-manna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert