Heimsmeistarinn varði víti og fagnaði í andlit stuðningsmanna

Emiliano Martínez, markvörður heimsmeistara Argentínu, varði víti í útisigri Aston Villa á Fuham, 3:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. 

Fulham komst yfir þökk sé marki frá Raúl Jimenez en Morgan Rogers jafnaði metin, 1:1. 

Fulham fékk síðan víti sem Martínez varði frá Andreas Pereira. Martínez snéri sér síðan við og fagnaði vítavörslunni í andlit stuðningsmanna Fúlham. 

Ollie Watkins kom Villa yfir og Daninn Joachim Andersen fékk síðan rautt spjald í liði Fulham. 

Þriðja mark Villa var síðan sjálfsmark. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert