Varnarmaður breyttist í framherja (myndskeið)

Michael Keane varnarmaður Everton skoraði glæsilegt mark í sigri í útisigri Everton á Ipswich, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. 

Ilim­an Ndiaye kom Everton yfir í fyrri hálfleik en í þeim seinni bætti Keane öðru marki við. 

Þá nelgdi hann boltanum í þaknetið eins og alvöru framherji. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert