Fullyrðir að Salah skrifi undir

Mohamed Salah er aðalkallinn í Liverpool-borg.
Mohamed Salah er aðalkallinn í Liverpool-borg. AFP/Paul Ellis

Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrverandi knattspyrnumaður Liverpool og enska landsliðsins, fullyrðir að Mohamed Salah aðalstjarna Liverpool-liðsins muni skrifa undir nýjan samning hjá félaginu. 

Salah, sem er 32 ára gamall, skoraði fyrra mark Liverpool og lagði seinna upp í sigri á Chelsea, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni um helgina. 

Hann er á lokaári samnings síns hjá félaginu líkt og fyrirliðinn Virgil van Dijk og Trent Alexander-Arnold. 

Með augun á fleiri mörkum

Salah skoraði sitt 162. mark í deildinni um helgina og er aðeins 13 mörkum á eftir Thierry Henry sem er sjöundi markahæsti leikmaður í sögu ensku deildarinnar. 

„Salah er með augun á Henry og Frank Lampard. Hann vill skora fleiri mörk en þeir. Það er ein stærsta ástæðan fyrir því að hann mun skrifa undir nýjan samning,“ sagði Carragher hjá SkySports. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert