Skotmark Liverpool framlengdi í Newcastle

Anthony Gordon fagnar marki í leik með Newcastle.
Anthony Gordon fagnar marki í leik með Newcastle. AFP/Paul Ellis

Enski knattspyrnumaðurinn Anthony Gordon skrifaði í dag undir nýjan langtímasamning við Newcastle United og batt þar með enda á orðróma um hvort hann gangi til liðs við Liverpool.

Í tilkynningu frá Newcastle kemur ekki fram hversu langur samningurinn er en greinir Daily Mail frá því að hann sé til næstu fimm ára og renni því út sumarið 2029.

Gordon var þrálátlega orðaður við Liverpool í allt sumar en á endanum kom ekki til þess að topplið ensku úrvalsdeildarinnar lagði fram tilboð.

Hann er alinn upp hjá nágrönnunum í Everton og var keyptur þaðan til Newcastle í janúar árið 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert