Eiður Smári: Höndla ekki mótlæti

Eiður Smári Guðjohnsen telur að karlalið knattspyrnufélagsins Arsenal höndli ekki mótlæti nógu vel. 

Arsenal fékk á sig þriðja rauða spjaldið í fyrstu átta leikjum tímabilsins um helgina í tapi fyrir Bournemouth, 2:0. 

Eiður Smári var ásamt Margréti Láru gestur Harðar Magnússonar í Vellinum á Símanum Sport þar sem þau gerðu upp áttundu umferðina. 

Höndla Arsenal og Arteta mótlæti? Spurði Hörður.

„Ekki bara Arteta, heldur Arsenal-liðið höndlar ekki nógu vel mótlæti, enn þá,“ sagði Eiður meðal annars en umræðuna í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert