John McGinn, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Aston Villa, segist aldrei áður hafa hitt annan eins mann og Unai Emery stjóra liðsins.
Aston Villa hefur farið frábærlega af stað í Meistaradeild Evrópu en liðið vann Bologna, 2:0, í gærkvöldi.
Liðið er á toppnum í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og vann meðal annars stórlið Bayern München í annarri umferð.
Emery hefur gjörbreytt félaginu eftir að hann kom veturinn 2022. Fyrirliðinn John McGinn vill meina að hann sé nú þegar einn albesti stjóri í sögu félagsins.
„Það skiptir ekki máli hvað gerist þangað til hann fer, sem verður vonandi aldrei. Hann er nú þegar einn besti stjóri í sögu félagsins.
Hann er svo einbeittur og ákveðinn, ég hef aldrei hitt annan eins mann,“ sagði McGinn við breska ríkisútvarpið BBC.