Arteta sagði lítið

Mikel Arteta er knattspyrnustjóri Arsenal.
Mikel Arteta er knattspyrnustjóri Arsenal. AFP/Glyn Kirk

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal, gaf óskýr svör þegar kom að heilsu lykilmanna sinna fyrir stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni gegn Liverpool í Lundúnum á sunnudaginn kemur. 

Arsenal er í miklum meiðslavandræðum en fyrirliðinn Martin Ödegaard og Takehiro Tomiyasu verða frá á sunnudaginn. Þá verður William Saliba ekki með vegna leikbanns. 

Arteta gat ekki staðfest hvort að Bukayo Saka, Jurrien Timber eða Riccardo Calafiori yrðu með Arsenal-liðinu, en þeir eru allir tæpir fyrir leikinn. Hann hins vegar útilokaði það ekki heldur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert