Forest upp í Evrópusæti

Chris Wood fagnar marki í kvöld.
Chris Wood fagnar marki í kvöld. AFP/Darren Staples

Nottingham Forest hafði betur gegn nýliðum Leicester, 3:1, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Með sigrinum fór Forest upp í fimmta sæti deildarinnar, þar sem liðið er með 16 stig. Leicester er í 14. sæti með níu stig.

Ryan Yates kom Forest yfir á 16. mínútu en sjö mínútum síðar jafnaði Jamie Vardy og var staðan í leikhléi 1:1.

Chris Wood kom Forest aftur yfir á 47. mínútu og þrettán mínútum síðar gerði hann sitt annað mark og þriðja mark Forest. Urðu mörkin ekki fleiri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert