Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson hefur gert samning við velska knattspyrnufélagið Wrexham sem gildir til áramóta. Liðið leikur í ensku deildakeppninni og er í C-deildinni um þessar mundir.
Eigendur Wrexham eru Hollywood-leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney. Liðið hefur farið upp um tvær deildir á síðustu tveimur tímabilum og er sem stendur í öðru sæti C-deildarinnar.
Þar sem Jón Daði var samningslaus gat hann skrifað undir hjá Wrexham utan félagskiptagluggans.