Franski knattspyrnumaðurinn Joshua Guilavogui er genginn til liðs við Leeds á frjálsri sölu frá Mainz.
Guilavogui skrifar undir út tímabilið en hann er 34 ára gamall miðjumaður sem á sjö landsleiki að baki fyrir Frakkland.
Miðjumennirnir Ethan Ampadu og Ilia Gruev eru meiddir og þurfti Leeds því nauðsynlega miðjumann.
Leedsarar eru í þriðja sæti ensku B-deildarinnar með 22 stig eftir ellefu leiki.