United bað City um greiða

Kobbie Mainoo.
Kobbie Mainoo. AFP/Paul Ellis

Manchester United bað nágranna sína Manchester City um greiða til að spara pening. 

United-liðið spurði City hvort að ungi leikmennirnir Alejandro Garnacho og Kobbie Mainoo mættu fara með liðinu á verðlaunaafhendingu gullboltans. 

Enskir miðlar greina frá en samkvæmt þeim bað United um greiðan til að spara pening. 

City gat ekki tekið á móti leikmönnunum þar sem að flugvél liðsins er fullmönnuð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert