Trent Alexander-Arnold stefnir á það að vinna Gullboltann, Ballon d´Or verðlauninn, sem eru ein virtustu einstaklingsverðlaun knattspyrnunnar.
Alexander-Arnold var beðin um að velja á milli þess að vera fyrirliði Liverpool, vinna Meistaradeildina, vinna bikar með enska landsliðinu eða vinna Gullboltann, sem hann valdi.
„Ég trúi því að ég get það,“ sagði Alexander-Arnold í viðtali við Sky og hélt áfram: “Ég vil verða fyrsti bakvörður sögunnar sem fær þessi verðlaun.“