Fyrsta sigurmarkið var huggulegt (myndskeið)

Jean-Philippe Mateta skoraði sigurmark Crystal Palace 1:0-sigri liðsins á Tottenham á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Skoraði Frakkinn eftir glæsilegan undirbúning Eberechi Eze. Sigurinn var sá fyrsti hjá Palace í deildinni á leiktíðinni.

Svip­mynd­ir úr leikn­um má sjá í spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan. Mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert