Aðeins Harry Kane og Wayne Rooney gert betur

Mohamed Salah fagnar marki sínu gegn Arsenal í gær.
Mohamed Salah fagnar marki sínu gegn Arsenal í gær. AFP/Adrian Dennis

Mohamed Salah tryggði Liverpool stig gegn Arsenal í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í Norður-Lundúnum í gærkvöldi. 

Markið kom á 81. mínútu en þá jafnaði Salah metin í 2:2 og þar við sat. 

Með markinu hefur Salah nú skorað 11 mörk í 15 leikjum gegn Arsenal. Aðeins Harry Kane, með 14 mörk, og Wayne Rooney, með 12 mörk, hafa skorað fleiri gegn liðinu í ensku úrvalsdeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert