Forest fékk hærri sekt en Chelsea

Leikurinn fór fram á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea.
Leikurinn fór fram á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea. AFP/Justin Tallis

Enska knattspyrnusambandið hefur sektað bæði Chelsea og Nottingham Forest fyrir slagsmálin sem urðu þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni fyrr í mánuðinum.

Slagsmálin urðu til þegar Neco Williams hjá Forest ýtti Marc Cucurella á Enzo Maresca stjóra Chelsea. Enginn hefur verið úrskurðaður í bann vegna þeirra.

Chelsea fékk sekt upp á 40.000 pund og Forest 125.000 pund, þar sem félagið hefur oftar verið sektað fyrir slæma hegðun leikmanna á undanförnum árum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert