Svíinn sá um Arsenal

Alexander Isak, sem skoraði fyrsta mark leiksins, með boltann í …
Alexander Isak, sem skoraði fyrsta mark leiksins, með boltann í dag. AFP/Paul Ellis

Sænski framherjinn Alexander Isak var hetja Newcastle er liðið lagði Arsenal, 1:0, á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Isak skoraði sigurmarkið á 12. mínútu með glæsilegum skalla eftir sendingu frá Anthony Gordon.

Arsenal er í þriðja sæti með 18 stig, fimm stigum á eftir toppliði Manchester City. Newcastle fór upp í 15 stig og áttunda sæti með sigrinum.

Alexander Isak fagnar fyrsta marki leiksins.
Alexander Isak fagnar fyrsta marki leiksins. AFP/Paul Ellis

Arsenal gekk bölvanlega að skapa sér færi allan leikinn og varðist Newcastle mjög vel eftir markið. Nick Pope þurfti aldrei að taka á honum stóra sínum í marki heimamanna.

Declan Rice fékk besta færi Arsenal en hann skallaði framhjá úr úrvalsfæri í uppbótartíma eftir fyrirgjöf frá Bukayo Saka.

Annars gerðist fátt markvert, Newcastle reyndi lítið að bæta við á meðan Arsenal komst lítið sem ekkert áleiðis og því fór sem fór fyrir gestina.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Liverpool 0:1 Brighton opna
14. mín. Ferdi Kadioglu (Brighton) skorar 0:1 - Frábært skot hjá Tyrkjanum! Sóknin er mjög góð og endar með fyrirgjöf frá Mitoma sem Welbeck potar til hliðar. Boltinn endar hjá Kadioglu utarlega í teignum og lætur vaða í stöng og inn. Geggjað mark.

Leiklýsing

Newcastle 1:0 Arsenal opna loka
90. mín. Kai Havertz (Arsenal) fær gult spjald Brýtur af sér og lætur dómarann síðan heyra það. Tíminn er búinn fyrir Arsenal.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka