Egypski knattspyrnumaðurinn Mo Salah verður samningslaus í sumar og eru forráðamenn Liverpool viðbúnir því að hann gæti yfirgefið félagið eftir leiktíðina.
Er félagið því byrjað að leita að eftirmanni hans og sú leit er langt komin samkvæmt enska miðlinum Sky Sports.
Á meðal leikmanna sem koma til greina sem arftakar Salah, fari svo að hann yfirgefi félagið, eru þeir Bryan Mbeumo hjá Brentford og Antoine Semenyo hjá Bournemouth.
Mbeumo er næstmarkahæstur allra í ensku úrvalsdeildinni með átta mörk í níu leikjum og Semenyo hefur gert fjögur mörk í tíu leikjum. Þá skoraði hann fimm mörk í 14 síðustu leikjum síðasta tímabils.