Vill prófa að vera einhleypur í Lundúnum

Enzo Fernandez.
Enzo Fernandez. AFP/Adrian Dennis

Argentínski knattspyrnumaðurinn Enzo Fernandez stendur í skilnaði þessa dagana en hann er samningsbundinn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

Eiginkona hans, Valentina Cervantes, greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Instagram, en þau hafa verið gift í sex ár og eiga saman tvö börn.

Argentínska blaðakonan Julieta Argenta greinir frá því á samfélagsmiðlinum X að ástæðan fyrir skilnaðinum sé sú að Fernandez vilji fá að upplifa það að vera einhleypur í Lundúnum.

Þá hafi hann stofnað fjölskyldu ungur að árum og telji sig hafa misst af mikilvægum tíma í lífinu. Ákvörðun Fernandez hefur ekki farið vel í netverja sem hafa margir látið hann heyra það duglega á samfélagsmiðlinum X.

Fernandez, sem er 23 ára gamall, hefur verið í sambandi með Cervantes síðan hann var 16 ára gamall en börn þeirra eru fædd árið 2020 og 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert