Arsenal fylgist áfram með Þjóðverjanum

Leroy Sané er leikmaður Bayern München.
Leroy Sané er leikmaður Bayern München. AFP/Kirill Kudryavtsev

Arsenal fylgist áfram náið með þýska knattspyrnumanninum Leroy Sané, leikmanni Bayern München. 

Þýskir miðlar greina frá en Sané hefur lítið spilað fyrir Bayern í þýsku deildinni á tímabilinu og ekki verið í byrjunarliðinu í einum leik. 

Sané gekk í raðir Bayern frá Manchester City sumarið 2020 en fyrir það hafði hann verið hjá Manchester-liðinu. 

Sané var upp á sitt besta á meðan Mikel Arteta, stjóri karlaliðs Arsenal, var aðstoðarþjálfari hjá City. 

Arteta hefur nú þegar fengið Gabriel Jesus og Raheem Sterling til liðs við sig en þeir ásamt Sané mynduðu oft framlínunu City á þeim tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert