Óvissa með stjörnu Chelsea

Cole Palmer nuddar hnéð eftir atvikið á sunnudaginn var.
Cole Palmer nuddar hnéð eftir atvikið á sunnudaginn var. AFP/Paul Ellis

Óvíst er hvort Cole Palmer leikmaður Chelsea geti leikið stórleik liðsins gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudag.

Palmer er að glíma við meiðsli sem hann varð fyrir í leik Chelsea gegn Manchester United síðastliðinn sunnudag.

Palmer varð fyrir hnémeiðslum þegar Lisandro Martínez, varnarmaður Manchester United, braut illa á honum undir lok leiks.

Martínez slapp með gult spjald spjald, þrátt fyrir að fara með takkana í hnéð á Englendingnum unga.

Palmer leikur ekki við Guðmund Þórarinsson og félaga í armenska liðinu Noah í Sambandsdeildinni annað kvöld og þá er leikurinn við Arsenal í mikilli óvissu hjá sóknarmanninum að sögn Sky Sports. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert