Spilar Rice tábrotinn?

Declan Rice er lykilmaður í liði Arsenal.
Declan Rice er lykilmaður í liði Arsenal. AFP/Adrian Dennis

Declan Rice, einn af lykilmönnum enska knattspyrnuliðsins Arsenal, gæti spilað tábrotinn gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi sunnudag. 

Arsenal-liðinu hefur gengið illa undanfarið og aðeins unnið eitt stig af síðustu níu í deildinni. Þá tapaði liðið fyrir Inter Mílanó, 1:0, í Meistaradeildinni í gærkvöldi. 

Rice var ekki með í þeim leik en samkvæmt DailyMail er hann tábrotinn. Hann gæti þrátt fyrir það spilað gegn Chelsea á sunnudaginn vegna mikilvægi leiksins, eða svo kemur fram í DailyMail. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert