Vill ekki segja hvað amar að

Diogo Jota og Arne Slot.
Diogo Jota og Arne Slot. Ljósmynd/Samsett

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segir portúgalska sóknarmanninn Diogo Jota enn meiddan og að búast megi við honum til baka eftir landsleikjahléið sem hefst í næstu viku.

„Við búumst við honum til baka fyrstu vikurnar eftir landsleikjahléið,“ sagði Slot á fréttamannafundi í morgun.

Spurður hvað amaði að Jota vildi hollenski stjórinn hins vegar ekkert segja.

„Það hvílir leynd yfir þessu. Hann snýr aftur einum eða tveimur leikjum eftir landsleikjahléið,“ sagði Slot.

Portúgalinn meiddist í 2:1-sigri Liverpool á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni 20. október síðastliðinn. Jota lenti þá illa eftir að Tosin Adarabioyo braut á honum en hélt leik áfram um skeið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert