Wrexham hafði betur gegn Mansfield, 1:0, í hörkuleik í ensku C-deild karla í knattspyrnu í dag.
Jón Daði Böðvarsson, sem gekk í raðir Wrexham á dögunum, kom inn á þegar rúmt korter var eftir.
Sigurmark Wrexham skoraði Ryan Barnett á sjöttu mínútu leiksins en liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 28 stig, einu stigi frá toppnum.
Birmingham og Wycombe Wanderers spila bæði síðar í dag en þau eru bæði með 29 stig.