Furðulostinn yfir tilboði Newcastle

Alexander Isak.
Alexander Isak. AFP/Paul Ellis

Teymi sænska knattspyrnumannsins Alexanders Isaks er furðulostið á samningstilboði Newcastle. 

Isak og Newcastle hafa verið í viðræðum um nýjan samning í dágóðan tíma, en Svíinn er með samning næstu fjögur árin. 

Hann er þó ekki á meðal launhæstu manna, eitthvað sem teymið hans vill breyta. 

Nú greinir TDR frá því að Isak ásamt teymi sínu sé í sjokki yfir samningstilboðinu sem Newcastle bauð framherjanum. Þá er búist við því að hann fari næsta sumar, sérstaklega ef Newcastle tekst ekki að komast í Meistaradeildina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka