Fjögur félög i ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu eru sögð hafa áhuga á að fá David Moyes til liðs við sig.
Moyes, sem er þaulreyndur þjálfari, var síðast stjóri West Ham í ensku deildinni en hann hætti eftir síðasta tímabil.
Hann hefur einnig stýrt Preston, Everton, Mancester United, Real Sociedad og Sunderland.
Samkvæmt SkySports eru fjögur félög í úrvalsdeildinni að skoða að fá Moyes sem næsta knattspyrnustjóra, þau eru hins vegar ekki nafngreind.