Arsenal-maðurinn undir hnífinn

Ben White hefur verið að glíma við hnémeiðsli á tímabilinu.
Ben White hefur verið að glíma við hnémeiðsli á tímabilinu. AFP/Paul Ellis

Enski knattspyrnumaðurinn Ben White, varnarmaður Arsenal, hefur gengist undir skurðaðgerð á hné vegna meiðsla sem hafa verið að angra hann að undanförnu.

Sky Sports greinir frá því að um minniháttar aðgerð hafi verið að ræða en ekki kemur fram hversu lengi White má vænta þess að vera frá keppni.

Hann er einn af fjórum varnarmönnum Arsenal sem glímir við meiðsli um þessar mundir. Riccardo Calafiori, Takehiro Tomiyasu og Kieran Tierney eru einnig á meiðslalistanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert