Rúmenski knattspyrnumaðurinn Radu Dragusin mun ekki yfirgefa Tottenham í janúar þrátt fyrir lítinn spilatíma.
Þetta staðfesti umboðsmaður hans við fjölmiðil í heimalandinu.
„Hann mun ekki yfirgefa Tottenham í janúar. Það er heiður að hann sé orðaður við Napoli og Juventus, en það er bara orðrómur. Hann á fimm ár eftir hjá Tottenham.
Við munum endurskoða þetta í júní ef hann heldur áfram að fá lítinn spilatíma,“ sagði umboðsmaðurinn.